Sleppa í aðalefni

Skilmálar

1. Persónuupplýsingar

Þegar bókað er hjá okkur fáum við nafn, kennitölu, símanúmer og netfang ásamt upplýsingum um bíl og flug. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að þjónusta þig sem viðskiptavin.

Allar upplýsingar sem snúa að greiðslu fara í gegnum Teya greiðslugáttina.

2. Ábyrgðarskilmálar

Bílaplan Park & Go er afgirt og vaktað allan sólarhringinn og við leggjum mikla áherslu á að ökutæki viðskiptavina séu í öruggri vörslu á meðan þau eru hjá okkur.

Park & Go ber ábyrgð á tjóni sem verður á ökutæki meðan það er í vörslu fyrirtækisins að því marki sem hægt er að rekja tjónið til vanrækslu eða saknæmrar háttsemi Park & Go eða starfsmanna þess. Tjón sem fellur undir ábyrgð Park & Go er meðhöndlað í samræmi við ábyrgðartryggingu fyrirtækisins.

Park & Go ber ekki ábyrgð á tjóni eða bilunum sem verða án sakar eða vanrækslu fyrirtækisins, eða sem rekja má til eðlilegs slits, aldurs, ástands eða undirliggjandi bilunar í ökutækinu. Þetta getur til dæmis átt við um bilaða rafgeyma, tímareimar, vélarhluti, rafbúnað eða aðra íhluti sem bila vegna aldurs, slits eða ástands ökutækisins.

Park & Go ber jafnframt ekki ábyrgð á tjóni sem verður vegna aðstæðna sem fyrirtækið hefur ekki stjórn á, svo sem óveðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra utanaðkomandi atvika, nema annað leiði af lögum.

Ef viðskiptavinur verður var við tjón á ökutæki skal það tilkynnt til Park & Go eins fljótt og auðið er. Við mat á tjóni getur Park & Go meðal annars stuðst við myndir af ökutækinu við komu og brottför, myndavélaupptökur, upplýsingar frá starfsfólki og önnur gögn sem liggja fyrir.

3. Endurgreiðslur

Endurgreitt er að fullu ef afbókað er með að minnsta kosti 24 klst. fyrirvara fyrir brottför. Einnig endurgreiðum við ef um forföll er að ræða vegna veikinda. Ef það er minna en sólarhringur í ferðina þá fæst þjónustan ekki endurgreidd.

4. Lög og varnarþing

Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfur á hendur Park and GO ehf. á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

5. Samskipti vegna bókunar

Þegar þú bókar hjá okkur sendum við þér tölvupóst sem tengist bókuninni þinni, til dæmis staðfestingu á bókun og reikning. Auk þess sendum við þér SMS-áminningu fyrir brottför. Þessi samskipti eru hluti af þjónustunni og nauðsynleg til að hægt sé að afgreiða bókunina þína.

Markaðsefni, svo sem fréttabréf og afsláttarkóðar, er aðeins sent þeim sem haka sérstaklega við það við bókun. Þú getur hvenær sem er afskráð þig af slíkum póstlista. Afskráning hefur engin áhrif á samskipti sem tengjast bókuninni þinni.

Ertu með spurningar?

Ef þú þarft frekari upplýsingar um skilmálana, hafðu samband við okkur.

Hafðu samband